Á síðastliðnum..... nei það er víst á þarsíðastliðnum sunnudegi þá hringdi ég í Eggert nokkurn Bjarnason til að láta hann vita að veiðiferðin væri einum degi fyrr heldur en við höfðum gert ráð fyrir, eitthvað smá klikk með dagsetningar. En þá tjáði hann mér það að hann ætlað sér ekki að koma því að hann væri að bíða eftir smiðnum sem er að fara hjálpa honum að klæða húsið (ekki það að hann sé búinn að hafa 6 MÁNUÐI TIL AÐ SKIPULEGGJA ÞAÐ). En nú voru öll ráð dýr veiðiferðin eftir tvo daga og ég ekki með einn einasta veiðifélag og allir að vinna. Eiginlega ekki hægt að fá menn úr vinnu bara með tveggja daga fyrirvara.
Það voru hringd nokkur símtöl og það endaði með því að Sigurður nokkur Viktor eða Siggi Viggi kom og skellti sér með okkur sem veiðifélagi minn.
Haldið var af stað á miðvikudagsmorgunin kl 08:45 áleiðis til Grundarfjarðar að ná í Sigga. Stoppuðum líka í sjoppunni og þar hittum við strák sem Atli og Frikki þekkja og hann fór að spurja um hvaða leið við ætluðum að fara. Þegar að hann sá hvaða leið þetta var þá sýndi hann okkur aðra leið sem stytti ferðina um 2 tíma, eða mér fannst það líta þannnig út á kortinu
. Síðan héldum við af stað frá Grundó kl 09:30 og stefnan sett á búðardal. Ég man ekkert hvað klukkan var þegar við komum þangað. En ég og Siggi þurftum að bíða þar í smá tíma eftir Atla og Frikka því þeir fóru í Miðá til að hitta Sigga Valla eitthvað, en hann var þar að veiðum ásamt fjölskyldu sinni.Þegar að þeir loksins komu þá fóru þeir í það að versla matinn og dótið fyrir ferðina, en þeir höfðu ekki komist í það deginum áður. Ég fór hinsvegar í bónus daginn áður og sem betur fer. Ég keypti meira fyrir sjálfan mig einann heldur en þeir fyrir sig tvo saman en samt borgaði ég helmingi minna Án GRÍNS þvílíkur munur á því að versla mikið í bónus eða bara í næstu kjörbúð.
Eftir þessa verslunarferð var haldið af stað á ný. Við byrjuðum á því að fara upp á einhverja heiði sem ég veit ekki hvað heitir en fyrir mér mætti hún heita Tætluheiði!!! þar sem að hún var öll í tætlum og bara ömurleg yfirferðar. En það hafðist allt að lokum.
Næsti stoppustaður var Bjarkarlundur. Þar fórum við og fengum okkur borgara nema gamli kallinn hann Atli hann fékk sér að sjálfögðu pönnusteiktan skötusel og súpu í forrétt. Með ólíkindum hvað hann er unglegur miðað við aldurinn.
En á þessum fína stað vour tveir uppstoppaðir laxar 20 pund+ og við svona fengum nettan fiðring í magann.
En svo eftir matinn héldum við áfram og gekk ferðin bara vel. Fórum yfir Þorskafjarðarheiði og ég bara vissi ekki að það væru virkilega enþá til vegir á Íslandi sem ekkert hafa verið lagaðir síðan 1950.
Jæja loksins komumst við í Hvannadalsá kl 14:30 og var veðrið bara nokkuð gott skýjað en lítilll vindur.
Eftir að við vorum búnir að koma okkur þokkalega fyrir í bústaðnum þá var kastað upp á það hverjir gistu á svefnloftinu og hverjir í herberginu. Ég og Siggi fengum herbergið
síðan var kastað upp á það hverjir byrjuðu á neðra svæðinu í ánni og hverjir í því efra. Enn og aftur unnum við Siggi og fengum neðra svæðið, sem var kannski gott en samt ekki því við kunnum ekkert á ánna og þekktum ekki staðina.Síðan var haldið til veiða. Og það gerðist ekkert fyrstu vaktina.
Eftir daginn var farið í bústaðinn og grillað og bara slappað af.
Daginn eftir var aftur haldið til veiða. Ég og Siggi á efra svæðið og Atli og Frikki á það neðra. Við fengum ekkert en Atli og Frikki fengu einn, og Atli misssti einn.
Svo í hléinu þá vorum við að chatta um ánna. Þessi á var virkilega erfið því hún var bara eitt beljandi stórfljót. Og við ræddum möguleikann á því að fara í rafting í henni. Hún var sko vel fær í það, þvílíkt rugl þetta vatn í henni.
Enn jæja seinni vaktin áttum við Siggi neðra svæðið og það gerðist ekki neitt fyrr en seint um kvöldið að ég var að taka næstsíðasta kastið í flottasta stað í ánni eða Árdalsfossi.
Ég var eitthvað orðinn pirraður á fiskleysi, tók ég þetta líka pirringskast og kastaði langt yfir allann hylinn eiginlega næstum því í bakkann hinu meginn. Nema svo þegar ég byrja að draga inn, jú hvað annað það var kominn lax á maðkinn minn
. Nú hófst alveg 5 mínótna barátta milli mín og hans. Adrenalínið fór á fullt og hendurnar skulfu svo mikið að parkinsons sjúklingur hefði skammast sín við hliðina á mér.Þetta endaði þannig að ég var búinnað klöngrast niður bakkan og kominn alveg að laxinum, horfði á hann svona 2 metra frá mér, hann var orðinn þreyttur og ég ætlaði að reyna að koma honum nær!! en nei nei þá bara lak maðkurinn úr honum og laxinn synti rólega í burtu frá mér
þetta helvíti.Jæja það var ekkert við þessu að gera nema bara að fara í bústaðinn og grilla og reyna að slappa af fyrir næsta dag.
Næsti dagur:
Ég og Siggi áttum efra svæðið um morguninn, og við eiginlega veiddum ekki neitt vorum meira bara að slæpast og bíða eftir því að komast á neðra svæðið. Það hafði ringt um nóttina og vatnið í ánni var orðið enn meira, ástandið á henni var að verða gjörsamlega óveiðanlegt.
Siggi og ég fórum snemma upp í bústað því við nenntum ekki að vera renna á efra svæðinu það hafði engann tilgang. Svo um tvö leitið koma loksins Atli og Frikki virkilega súrir á svip, sögðu lítið og það var greinilegt á þeim að þeir höfðu lent í einhverju.
Jú svo loksins fóru þeir að tala. Þá kom það í ljós að Atli hafði misst einn, og Frikki var bara nýbúinn að missa lax sem að þeir sögðu að hefði pottþétt verið 14 pund eða meira. Frikki var ekki sáttur og hann er með marblett á olnboganum eftir að hafa dottið í átökunum við þanna stóra.
Jæja þá kom að seinni vaktinni og Siggi og ég áttum neðra svæðið. Fullir eftirvæntingar fórum við að sjálfsögðu beint í hylinn heita sem var svona líflegur. Við renndum fyrst tungumeginn í honum í svona klukkutíma en færðum okkur svo hinu meginn í hann.
Eftir að ég var búinn að renna í hann þeim meginn í eihvern smá tíma er ég að spá að hætta og skipta við Sigga, nema í seinasta kastinu tekur lax neðarlega í strengnum, og aftur hefst hjá mér nokkurra mínótna barátta við lax. Ég klöngraðist upp á bakkann og rak Sigga niður til að standa þar klárann og reyna að sporðtaka laxinn og henda honum upp á land, en nei nei þegar að ég er að reyna stýra laxinum til Sigga þá enn og aftur lekur önugllinn úr honum
. Mér var ekki ætlað að fá fisk í þessum túr.Þannig að nú dró ég mig bara í hlé og Siggi fór að renna í hylinn. Eftir að hann var búinn að vera svona klukkutíma þá sé ég að hann stendur upp og er eitthvað að góna í hylinn, svo lítur hann til mín, og ég spyr hvort að hann sé með fisk og hann kinkar kolli.
Núna mátti ekkert klikka þessi varð að komast á land svo að við yrðum ekki fisklausir, þar að auki yrði þessi lax maríulaxinn hans Sigga.
Ég hljóp og skautaði niður 90 gráðu bakkann og endaði næstum því útí á. Setti mig svo í stellingar tilbúinnað að sporðtaka laxinn og henda honum upp á land.
Eftir smá stund tekst Sigga að stýra honum til mín og ég gríp alveg leiftursnöggt í hann og grýtti honum á land og stökk síðann á hann svo hann myndi ekki sprikla aftur út í á.
Nú tóku við mikil fagnaðarlæti hjá okkur, Maríulaxinn hans Sigga kominn á land, ekkert annað að gera en að bíta af honum veiðiuggann.
Þegar ég var búinn að klöngrast aftur upp bakkann með fiskinn hans Sigga sjáum við Atla og Frikka, þeir voru eitthvað aað rúnta enda ekkert annað að gera á efra svæðinu. Þeir sáu að við vorum búnir að fá fisk og brunuðu á fullri ferð til okkar. Tóku þátt í gleðinni og hlógum að Sigga á meðann hann nagaði veiiðiuggann af.
Áfram héldum við að veiða en urðum ekki meira varir þessa vaktina.
Þá var haldið upp í bústað og aftur grillað, en núna var líka aðeins drukkið og teknir nokkrir kanar þar sem að Frikki sló í gegn.
Næsta dag og seinasta daginn áttum við bara að veiða til kl 13:00 ég og Siggi vorum lítið að stressa okkur enda áttum við efra svæðið og það þýddi ekkert að veiða það frekar en venjulega.
En gamli kallinn hann Atli lenti í ævintýri því hann fékk 9 punda kvikindi og tókst að landa honum og allt. Hann var ekkert lítið ánægður enda hefðu líka allir verið það, þetta var bara virkilega flottur fiskur.
Eftir vaktina tókum við til og brunuðum af stað í storminn á Sandaragleði. Allir með fisk nema ég. Er enn að reyna ná önglinum úr rassinum.

