Prófķll

  • Nafn: Gušbjartur Žorvaršarson
  • Stašur: Hellissandur
  • Atvinna: Sjóari og beitari
  • Hjśskaparstaša: Eins og hśn gerist bezt. . .
  • Um mig: Ęjj. . . Msniš er crappy26@hotmail.com skal reyna aš svara eftir bestu getu žar. . .

Mitt dót

2 veišiferšir og stuš į Seyšisfirši...

18. september 2007 klukkan 12:28

Frekar mikið búið að gerast síðan síðast, það mikið að ég hef bara ekki gefið mér tíma til að henda nokkrum línum inn.
En er búinn að fara í tvær veiðiferðir, og er því veiðisumarið formlega búið, því miður  Gráta .   En það kemur víst sumar eftir þetta sumar.
Fyrri veiðiferðin var í Miðá í Dölum, og vorum við 6 saman að veiða þar.  Hollið okkar endaði með 10 laxa, þar af náði ég tveimur.  Arnór og Eggert voru ekki alveg í stuði og enduðu fisklausir þennan túrinn.
Síðan viku seinna fórum við 4 saman í Hvannadalsá, og ég var nú með frekar meiri væntingar en venjulega, svona miðað við að það er komið fram á þennan tíma og fiskur ætti því að vera í einhverju magni.   En ekki urðum við neitt voðalega mikið varir við fisk og náðum ekki nema 3 kvikindum, frekar slappt.  Atli og Frikki þurftu að fá þann vafasama heiður að vera fisklausir þennan túrinn.
Þetta er semsagt búið og vonandi bara von um meiri veiði næsta sumar.

En þá víkjum við okkur austur á Seyðisfjörð.
Þangað skellti ég mér ásamt Fannari Hjálmars og Gísla Jóni á Landþing Sambands Ungra Sjálfsæðismanna, eða semsagt SUS.
Tókum flugið klukkan 10:30 á föstudagsmorgni og komnir austur um 11:30.  Tókum okkur bílaleigubíl og skelltum okkur á rúntinn.
Þingið byrjaði ekki fyrr en klukkan 18:00 þannig að við höfðum fínan tíma í að leika okkur aðeins.
Við kíktum á: Reyðarfjörð, Eskifjörð, Fáskrúðsfjörð, Stöðvarfjörð og Breiðdalsvík.  Nenntum ekki yfir á Neskaupstað.   En eitt, ef einhver er að tala um að Snæfellsbær sé krummaskuð, þá endilega skellið ykkur á Breiðdalsvík!!!  Þá fáiði að vita hvað felst í orðinu "krummaskuð" 
Við rendum síðan af stað til Seyðisfjarðar upp úr kl 17:00.
Sko fólk er að hneykslast á því þegar verið er að grafa göng fyrir svona litla bæi úti á landi,  en þið sem ekki hafið komið til Seyðisfjarðar ættuð að prófa.  Aðkoman að bænum er bara hreinasta grín.   Heiðin er ábyggilega svona 2 km fyrir ofan bæinn og svo er vegurinn bara lóðrétt niður á við með 90 gráðu beyjum langleiðina niður, þvílíkt og annað eins.
Þingið var sett á réttum tíma og síðan var farið í rútuferð í elstu virkjun landsins sem heitir fjarðaselsvirkjun og er hún frá 1913 eða 1908 man ekki alveg.  Man að ljósaperan inni sem kallinn kveikti á fyrir okkur hún er frá 1908 og er sennilega elsta virka peran í heimi.  Og ein vélin þarna inni er frá 1913 og malar eins og kettlingur enþá í dag.  Talandi um að vélar dugi ekkert.
Á laugardeginum hófst svo málefnavinnan,  ég skellti mér í auðlindanefndina og var hún frekar bara róleg, allir sammála og ekkert vesen, enda lukum við störfum mjög fljótlega.  Fór síðan yfir í samgöngunefndina þar var öllu meira fjör, og ábyggilega 30 manns þar inni.  Þetta kláraðist samt allt í góðu svoleiðis allavega.
Eftir hádegið hófst síðan umræðan um ályktaninar og kosning þeirra og breytingatillagna.
Svo um 19:00 leiitið var okkur boðið í kokteil í elstu vélsmiðju landsins í boði bæjarstjórnar Seyðisfjarðar, þar var fullt af gömlu dóti líka, virkilega gaman að sjá allt þetta gamla dót.
Kl 20:30 hófst síðan dinnerinn og dagskráin í Herðubreiðinni.  Flottur matur og flottur salurinn.  Eina sem skemmdi fyrir mér kveldið voru Garðbæingarnir, en þeir buðu upp á skemmtikraft, sem er kannski í lagi nema hvað að þetta var GEIR ÓLAFS!!!  og ég er yfirlýstur Geir Ólafs hatari, ég bara hata manninn.  Enda löbbuðum við út eftir fyrsta lagið.
Fórum uppá farfuglaheimili og drukkum til kl 01:00 og skelltum okkur þá á ballið með Todmobil sem bara stuð, og virkilega gott band á böllum.  Hún Andrea Gylfa er bara flott á sviðinu takk fyrir. 
Jæja við vorum nú ekki lengi að þetta kveldið enda þreyttir eftir daginn og kvöldið áður því við tókum kannski aðeins of mikið á því á föstudagskveldinu.  Gísli entist reyndar nokkuð lengi á lau.
Sunnudagurinn var rólegur, kosinn nýr formaður og varaformaður og ný stjórn sus mynduð,  já og FAnnar HJ komst inn í varastjórn eins og hann ætlaði sér, glæsilegt það.
En síðan var farið að týja sig af stað til Egilstaða rétt fyrir kl 17:00 ætluðum að slaka aðeins á og fá okkur að borð og svonna áður en við færum af stað.  Áttum allir pantað flug að sjálfsögðu, komum allir með sömu vélinni en fórum allir burt með sitthvorri vél hihihi, það var bara ekkert laust á hvaða tíma sem er.
Nema hvað að eins og var í fréttunum aað þá var farið að snjóa víðsvegar um landið og Seyðisfjörður var þar engin undantekning og þurftum að fara upp á þvílíkan fjallveg á Toyotu corollu á sumardekkjum  riiggghhhht.
Við komumst vel uppeftir en svo stóð allt fast og við komumst ekki lengra.  Gísli var ekki alveg að treysta sér til að keyra meira og snúa við, þannig að ég tók við, enda er hann alinn upp í Reykjavík Hlæjandi hefðum örugglega komist ef ég hefði keyrt strax hehehe nei nei segi svona, hefðum sennilega aldrei komist.  En á meðan við erum að svissa þá situr fannar inni í bíl og bíllinn byrjar að renna af stað og enginn við stýrið og það sást fallegur skelfingarsvipur á Fannari HJ þar sem hann ríghélt sér í.  En hetjan ég að sjálfsögðu Svalur muhahaha rétt náði að stökkva inn í bíl og stöðva förina, tók reyndar smá tíma þar sem hann rann bara á hálkunni og ekkert grip.  Þannig að Fannar slapp við að fara veltandi inni í bíl aftur til Seyðisfjarðar.  Okkur tókst svo að snúa við og komast til Seyðisfjarðar þar sem við tókum bara rútuna.  Og allt gekk vel eftir það.
Eini bömmerinn í ferðinni að bakpokanum mínum með myndavélinni minni og Fannars var að öllum líkindum stolið, erum ekki alveg sáttir Öskrandi  bölvaðir kommúnistar hafa verið með í ferðinni.
En þetta var bara megastuð allt saman.  Gaman að fara í innanlandsflug, hef ekki flogið innanlands síðan ég veit ekki hvenær, 1993 eða eikkað álíka.  Gaman líka að fljúga yfir Reykjavík í myrkri, flott að sjá.
En þetta er svona það helsta.  Svo var Fannar Hjálmars að reyna draga mig á kjördæmis þing 6 október á Blöndósi, ætla nú að bíða aðeins með að játa því, þessi flokkur fer að setja mann á hausinn með eintómum ferðalögum.  En þetta er alltaf stuð.

Látum þetta duga í bili

kv Bjarti  Sjálfstæðis veiðimaður...

Ęgir SkjóldalŽannig žś hefur afsökun til aš kaupa žér myndavél ?
#1
19. september 2007 klukkan 21:47
 
Gušbjartur Ž
Já það má segja það sko... En það var ekkert á dagskránni!!! Hin var bara alveg fín. . .
#2
19. september 2007 klukkan 22:59
Það var agalegt með myndavélarnar. En takk fyrir ferðina. þetta var alveg rosalega skemmtilegt. sérstaklega á föstudagskvöldinu. þá var almennilega drukkið. verra á laugardeginu þegar maður var þunnur, búinn að sofa í 4-5 tíma og vaknar klukkan 9, matur síðan ekki fyrr en klukkan 12, og maður þarf að halda sér vakandi allan daginn. úfff hvað laugardagurinn var mikill þynnkudagur.
#3
23. september 2007 klukkan 19:53
 
Bjarti
Já hún getur tekið á, helvítis drykkjan. . .
#4
24. september 2007 klukkan 17:11

Skrifa athugasemd

Auglżsing