Prófíll

  • Nafn: Guðbjartur Þorvarðarson
  • Staður: Hellissandur
  • Atvinna: Sjóari og beitari
  • Hjúskaparstaða: Eins og hún gerist bezt. . .
  • Um mig: Æjj. . . Msnið er crappy26@hotmail.com skal reyna að svara eftir bestu getu þar. . .

Mitt dót

Svaka tónleikar og síðan slappt djamm...

20. ágúst 2007 klukkan 17:11
Jæja, röddin rétt farin að jafna sig eftir þjóðhátíð, nema hvað þá fær mar kvef og varð þvílíkt hás.
Svo lagaðist það en þá skellti maður sér suður á tónleika á laugardalsvellinum og söng sig hásan að sjálfsögðu með Bubba morthens Svalur Röddin var fljót að jafna sig núna, hún er sennilega orðin vön þessum öskrum sem ég kalla söng.
En já ég Einar og Fannar skelltum okkur á Laugardalsvöllinn á föstudagskvöldið, á þessa mögnuðu tónleika í boði KBbanka
Þar spiluðu bönd eins og SSsól, Todmobile nú og líka Bubbi. Svo voru þarna atriði eins og Nylon, luxor til að sýna okkur munin á gervi tónlistinni þeirra og alvöru tónlist eins og hjá SSsól t.d...
Tónleikarnir enduðu á stuðmönnum og ég skil ekki afhverju. Ef það er svartur blettur á þessum tónleikum þá var það frammistaða þeirra, þvílík heitasta hörmung. Ef þetta hefði ekki verið frítt, þá hefði ég heimtað endurgreitt bara fyrir þeirra frammistöðu.
Laugardagurinn var rólegur framan af. Ég og fanni rápuðum um verslunarmiðstöðvarnar að eyða peningum sem við eigum ekki til á milli þess skelltum við okkur í ljós til að þykjast vera flottir.
Fannar keypti sér t.d demants eyrnalokka fyrir kvöldið. Veit ekki afhverju.
Um leið og við vorum komnir niður í bæ þá hvarf hann og ég hef ekki séð hann síðann, það er kannski eitthvað sem hann er að fela í sambandi við þessa eyrnalokka en látum það liggja á milli hluta.

Laugardagkvöldið byrjaði heima hjá Fannari þar sem við djúsuðum það mikið að ég varð að teyma hann heim til stebba.
Heima hjá stebba voru: Stebbi, Ægir, Haffi , Einar og Alex. Komu síðan einhverjir nágrannar í heimsókn en þeir fóru fljótt aftur.
VIð fórum svo allir niður í bæ og inn á Celtic, eða ég, Stebbi og Alex. Einar og fannar hurfu og hafa ekki sést síðan. Stuð að djamma með svona mönnum.
En við 3 röltum síðan á Glaumbar og þaðan á Amsterdam. Þar hittum við fyrir Dóru, Jóhönnu, Rebekku, Erlu maríu já og Megas...
Buffið var að spila þarna og þetta var bara allt í lagi. Persónulega finnst mér samt alveg skelfliega leiðinlegt að djamma í rvk, það er kannski enþá smá þjóðhátíð í manni getur verið.
Ótrúlegt en satt, en á síðustu skemmtunum hef ég alveg látið símann vera, það er að segja ekki verið hringjandi og sendandi sms í allar áttirHlæjandi og vaknað síðan daginn eftir og spá í hlutunum sem ég var að segja muhahaha batnandi mönnum er best að lifa eins og einhver snillingur sagði, sem er sjálfsagt dauður.

Jæja nóg væl í bili.
P.s örfáar myndir frá tónleikunum á myndasíðunni
linkurinn http://bjarti.myphotoalbum.com/view_album.php?set_albumName=album19

tjá tjá
Kv
Bjarti
Já og annað p.s þið getið kommentað á myndirnar sem eru á myndasíðunni ef þið skylduð ekki vita það. Bara svona ef þið sjáið alveg þvílíkt flotta mynd, nú eða alveg forljóta Glottandi

Og hér er eitt sem þið verðið að hlusta á, sérstaklega konur muhahaha Svalur engin karlremba í gangi samt..

http://dagskra.ruv.is/streaming/ras2/?file=4351913
 
Andrea
Þú hlýtur að eiga heimsmetið í að ná lélegum myndum af mér! Þessar þjóðhátíðarmyndir eru ógeðslegar hehehehe samt svo fyndnar
#1
29. ágúst 2007 klukkan 15:28
Guðbjartur ÞorvarðarsonHvaða hvaða :D
Ég varð þá loksins heimsmeistari í einhverju muhahaha ;)
#2
29. ágúst 2007 klukkan 17:37

Skrifa athugasemd

Auglýsing