Fyrsti laxinn í sumar og Besta helgi lífs míns liðin, Þjóðhátíð 2007 búin
Best að byrja bara strax á veiðiferðinni áður en ég kem að því besta. Við fórum ég,Atli, Nóri og Frikki í Hvanndalsá og lönduðum 6 fiskum. 4 löxum og tveimur bleikjum, allir fengu fisk þannig að enginn fór tómhentur heim.
Ég þurfti að hætta 3 tímum fyrr að hætta að veiða á fimmtudeginum svo ég næði nú Herjólfi kl 19:30 um kveldið.
Tók fáar myndir í þessari ferð og veit ekki hvort ég set þær inn, kannski seinna þá.
En já eins og fyrisögnin segir að þá er bestasta helgin í mínu lífi held ég bara liðin. En það var þjóðhátíðin 2007 sem fékk þann heiður að toppa allt sem hægt er að toppa.
Ekki veit ég hvað þið gerðuð en ef þið voruð ekki í eyjum þá held ég að þið hafið bara getið verið heima, einfalt mál.
Við vorum 6 allt í allt sem héngum sem mest saman: Ég, Gauji, Andrea, Fannar, Haukur og Einar.
Mér tókst að redda gistingu ekki nema nokkrum dögum fyrir þjóðhátíð. Vorum í kjallaraíbúð hjá hreint út sagt frábæru fólki sem djammaði með okkur alveg fram í rauðan dauðann. Ég og Dóri sem á húsið vorum t.d að skríða heim rúmlega 8 seinasta morguninn.
En það er svo mikið hægt að segja, og svo mikið sem ekki má segja
þau brilleruðu leyndarmálin í þessari ferð ![]()
" Leyndarmálin stór og smá,
gerðust nú á þjóðhátíð.
Ég því miður ekkert segja má,
heldur verð að geyma alla tíð."
Þetta var ævintýraferð sem ég og vinir mínir gleymum aldrei. Ekki veit ég hvort að Guð sé til, en ef svo er þá ætla ég að biðja þig kallinn minn að gera allt til þess að ég komist aftur á þjóðhátíð 2008 "please"
Og ég ítreka við ykkur sem ekki hafið farið!!! HVAÐ ERU ÞIÐ AÐ HUGSA??? drullist til að fara, hvort sem þið eruð gift með 23 börn eða eruð orðin 76 ára! hvað með það? lifið lífinu!!! eftir hverju eruð þið að bíða?
Þessi bloggsíða dugir ekki til að hafa allar sögurnar hérna. Þess í stað er ég búinn að setja inn myndir sem ég, já og reyndar Andrea Villimey líka tókum í Eyjum. Er líka búinn að setja inn nokkur video af okkur og fólki bara almennt.
Þegar þið horfið á þetta og heyrið rammfalskann mann öskrandi og að reyna syngja gjörsamlega raddlaus! þá er það ég
og er stoltur af.
Ég bara þakka fyrir mig þið sem voruð með mér, takk fyrir frábæra helgi. Og ég geymi leyndarmálin eins og þið ![]()
Mér er nú alveg sama hvort fólk kommentar eða ekki, en núna væri ég til í að fá nokkur. Annaðhvort frá vinum mínum sem voru með mér, en þó sérstaklega ykkur sem ekki voruð með, horfið á videoin og segið mér? hefðuð þið ekki verið til í að vera með okkur
haha enjoy
Hérna er linkurinn þannig þið þurfið ekki að leita af þessu
http://bjarti.myphotoalbum.com/view_album.php?set_albumName=album18
Skemmtið ykkur nú vel.
Kv Bjarti þjóðhátíðargestur
:DNope!!! er ekki nóg að heyra í mér fölskum muhahaha :)
Ég fullur er skemmtilegara en allt sem skemmtilegt er ;)
