Prófíll

  • Nafn: Guðbjartur Þorvarðarson
  • Staður: Hellissandur
  • Atvinna: Sjóari og beitari
  • Hjúskaparstaða: Eins og hún gerist bezt. . .
  • Um mig: Æjj. . . Msnið er crappy26@hotmail.com skal reyna að svara eftir bestu getu þar. . .

Mitt dót

Jæja eitt blogg fyrir frí. . .

29. júlí 2007 klukkan 15:15
Ekki það að ég sé búinn að vera eitthvað brjálað duglegur að blogga.  Það er bara alltof gott veður til að hanga heima í tölvunni, betra að vera úti á hjólinu :D

En núna fer í hönd vikuferðalag sem byrjar á þriðjudaginn þegar ég fer í laxveiðitúr númer 2 á þessu sumri.  Og er ferðinni heitið í Hvannadalsá í Ísafjarðardjúpi.
Þetta er virkilega falleg á sem geymir pottþétt eitthvað af fiski, og jafnvel nokkrum stórum.  Þeir taka sennilega ekki hjá mér en hvað með það :)
Við verðum að veiða þar fram á fimmt: Ég, Nóri, Atli og Frikki.
Svo verð ég að bruna strax úr veiðiferðinni, reyndar aðeins fyrr áður en veiðitíminn er búinn.  Verð að vera snöggur því ég verð að vera kominn í bæinn á fimmtudeginum kl 17 því við förum svo með bsí væntanlega til þorlákshafnar og með Herjólfi á Þjóðhátíð í eyjum takk fyrir :D
Ekki laust við að það sé kominn smá spenningur í mann.  Enda er bara ekkert sem jafnast á við þjóðhátíð.  Það lítur út fyrir einhverja rigningu um versló sem betur fer, ég held að það sé ekkert varið í þjóðhátíð nema að það rigni, ekkert stuð í brekkunni öðruvísi.
Kem síðan heim aftur á þriðjudeginum efir versló.  Uss uss usss.  Þetta verður meira ruglið.
Jæja  en ég kveð í bili með smá myndbandi fyrir ykkur sem eruð að fara á þjóðhátíð: þið getið bara hlakkað til við að horfa á þetta :D
Og þið hin sem eruð ekki að fara, þið getið bara öfundað okkur sem erum að fara.  Þið reynið bara að skemmta ykkur heima, nú eða Akureyri eða úti í löndum eða hvert sem þið eruð að fara.  Get bara lofað ykkur því að það toppar ekkert Þjóðhátíð.  So sorry for u people :D who are not goin.
En annars eigiði fína versló og bara gangið hægt um gleðinnar dyr.

kv Bjarti

Skrifa athugasemd

Auglýsing