Well oh well
08. júlí 2007 klukkan 18:08
Þá er komið að einni smá skriffinsku.
Það helsta merkilega sem ég hef frá að segja er t.d:
Fyrsti veiðitúrinn er búinn, þannig að nú eru bara þrír eftir. Þannig að það er mikið til að hlakka.
Við fórum í miðánna ég, Atli, Frikki, Garðar og Nóri nutt.
Fengum fínasta veður mikinn hita, en enga rigningu og engan lax í ánna. Náðum þó að kroppa upp 3 vænar bleikjur, sem er nú alveg ágætt. Enda var þessi túr meira svona upphitun fyrir hina túrana okkar sem verða allir á prime time og pottþétt lax gengin í árnar.
Ég tók nú ekki margar myndir en örfáar og er búinn að henda þeim inn á myndasíðuna undir veiðimyndir "miðá júlí 2007"
Nú ég kíkti út í gær á djammið, nema að nú var ég edrú og lét þar af leiðandi alla aðra um allt drama og vesen sem því fylgir. Ég var bara áhorfandi, og mikið ofboðslega var það fín tilfinning.
Það var reyndar ágætasta stemning á þessum svokallaðaðri fjölskylduhátíð Snæfellsbæjar, veit nú ekki alveg hvaðan þetta kemur en whatever bara.
Trítlaði með Völu, Matta, Andra og Gauja niður á Gilið.
Þar var slatti af fólki og flest allir fullir, eða bara allir nema ég. Hékk síðan mest megnið fyrit utan bara í blíðunni að drekka mitt kóka kóla
og spjallaði við fólkið.
Tók nokkrar myndir en þær eru ekkert spes þannig að ég set þær ekkert inn. Eða ég sé til þegar ég nenni.
Búið að vera brakandi blíða í dag og ég sé eftir því að hafa ekki skellt mér að veiða eitthvert. En þegar mar vakir svona lengi að þá þarf maður að sofa líka eitthvað á móti. Þannig að ég vaknaði frekar seint í dag, enda fór ég ekki að sofa fyrr en klukkan 7 þótt að ég hafi verið edrú.
En ekki var það fleira í bili.
P.s Mitt fyrsta mótorhjól er komið heim. Og er ég búinn að taka rúnt, mikið ofboðslega er þetta gaman.
Það eru 3 myndir af því á myndasíðunni undir bílamyndir.
jæja þetta er nóg.
Hana nú. . .

Það helsta merkilega sem ég hef frá að segja er t.d:
Fyrsti veiðitúrinn er búinn, þannig að nú eru bara þrír eftir. Þannig að það er mikið til að hlakka.
Við fórum í miðánna ég, Atli, Frikki, Garðar og Nóri nutt.
Fengum fínasta veður mikinn hita, en enga rigningu og engan lax í ánna. Náðum þó að kroppa upp 3 vænar bleikjur, sem er nú alveg ágætt. Enda var þessi túr meira svona upphitun fyrir hina túrana okkar sem verða allir á prime time og pottþétt lax gengin í árnar.
Ég tók nú ekki margar myndir en örfáar og er búinn að henda þeim inn á myndasíðuna undir veiðimyndir "miðá júlí 2007"
Nú ég kíkti út í gær á djammið, nema að nú var ég edrú og lét þar af leiðandi alla aðra um allt drama og vesen sem því fylgir. Ég var bara áhorfandi, og mikið ofboðslega var það fín tilfinning.
Það var reyndar ágætasta stemning á þessum svokallaðaðri fjölskylduhátíð Snæfellsbæjar, veit nú ekki alveg hvaðan þetta kemur en whatever bara.
Trítlaði með Völu, Matta, Andra og Gauja niður á Gilið.
Þar var slatti af fólki og flest allir fullir, eða bara allir nema ég. Hékk síðan mest megnið fyrit utan bara í blíðunni að drekka mitt kóka kóla
og spjallaði við fólkið.Tók nokkrar myndir en þær eru ekkert spes þannig að ég set þær ekkert inn. Eða ég sé til þegar ég nenni.