Helll yeaaahhhh!!!
07. maí 2007 klukkan 23:49
Hellll yeahhh!!!
Já snilldar tími búinn að vera svona undanfarna uuuuu 2 daga.Laugardagurinn var virkilega virkilega rólegur. Endaði á því að vera sofnaður fyrir kl 23:00 takk fyrir, reyndu betur.
En þetta stafaði aðalega af þreytu og líka að þá sofnaði ég yfir mótorhjólabókinni sem ég átti að vera lesa, því ég var að fara í æfingapróf á sunnudeginum.
Nú það fór eins og það fór. Þegar maður kemur illa lesin þá bara ganga hlutirnir ekki upp.
Fékk þetta upp í 8 villur þar sem ég mátti fá tvær. Ég meina þetta hefði alveg getað verið verra. Skil ekkert í þessu að vera leggja svona mikla áherslu á þessi umferðamerki, það þekkir þetta ekki einn einasti maður nema rétt fyrir prófið og búið.
En ég með lífið í lúkunum og illa augað sem ökukennarinn gaf mér, fór heim og las og las í gærkveldi, ásamt því að taka 20 æfingapróf á netinu til kl 00:30 í gær. Fór síðan að sofa, því ég þurfti að vakna í vinnu kl 03:45, svaf reyndar lítið, vaknaði á klukkutíma fresti útaf stressi því ég var að fara í bóklega prófið í morgun.
En þetta reddaðist, þrátt fyrir allt stressið og þá staðreynd að ég er búinn með neglurnar, að ég náði prófinu.
Fékk aðeins eina villu í fyrri hluta og eina í seinni. Þannig að nú eru bara eftir ökutímarnir og verklega prófið og síðan getur maður þeyst eftir götunum á einhverju öðru en bíl.
En þetta er ekki það eina góða, jú því að MANCHESTER UNITED VARÐ Í GÆR ENSKUR DEILDARMEISTARI!!!!
BESTA LIÐ ENSKU DEILDARINNAR. "reyndar í öllum heiminum en það er önnur ella"
Það er þá komin ein dolla í hús og bara eftir að ná í eina í viðbót.
Svo loka góða fréttin er sú að Sjálfstæðisflokkurinn er að skora BIG TIME í könnunum. En þetta eru ekki úrslitin svo að betra að geyma öll fagnaðarlæti þangað til talið hefur verið úr kössunum.
Nú er seinasta vikan fyrir kosningar rétt nýhafin og það á pottþétt eftir að verða eitthvað þras fram að laugardag.
Var að koma heim af fundi með Geir Haarde og Einari Oddi. Snilldar menn þar á ferð alveg gjörsamlegir snilldar menn.
Spjallaði aðeins við Geir á kosningaskrifstofunni og ég get ekki sagt annað en það að ég bara vill ekki sjá neinn annan stjórna þessu landi, það er bara mín skoðun..
En ég er eitthvað í svo góðu skapi að ég nenni ekki að hanga hér að skrifa eitthvað lengur sem enginn nennir að lesa þannig að bara tjá tjá
Það hlaut að koma að því að þú héldir mer einhverju almennilegu... :D
#3
06. júní 2007 klukkan 23:25

http://www.taildraggersinc.com/Images/tricycle.jpg