Mökkaðu brjálað!!!
Pétur Jóhann er að brillera í þessum þáttum. . .
Flott lag. . .
UUU slátruðum á laugardaginn, það gekk allt vel fyrir sig.
Hef ekki dottið í það af neinu viti síðan á þjóðhátíð, og reyndar ekki smakkað áfengi síðan í byrjun september. "það er reyndar ekkert fagnaðarefni"
Stendur allt til bóta þar sem það verður ball í röstinni seinni partinn í október, aldrei þessu vant "í röstinni" held að þetta sé skyldumæting, þó það væri nú ekki nema til að styrkja gott málefni.
Er orðinn bókaður í MIÐFJARÐARÁ seinnihluta næsta sumars
Hmm já meira er það ekki held ég.
En ætla að henda hérna inn lagi sem mér finnst helvíti flott. Er nú reyndar ekki rappari, en þegar skellt er inn í þetta smá rokki og rafmagnsgítar þá erum við að tala um annað mál. Og þetta er meira að segja íslenskt.
Geriðisvovel.
Bjarti out.
En meira að nördast. . .
http://www.myspace.com/bjatti
Endilega kíkið. . .
Á sjálfsagt eftir að breyta henni einhvern tímann þegar ég nenni, og læri meira á þetta dót.
kv
Bjarti nörd :)
2 veiðiferðir og stuð á Seyðisfirði...
Frekar mikið búið að gerast síðan síðast, það mikið að ég hef bara ekki gefið mér tíma til að henda nokkrum línum inn.
En er búinn að fara í tvær veiðiferðir, og er því veiðisumarið formlega búið, því miður
. En það kemur víst sumar eftir þetta sumar.
Fyrri veiðiferðin var í Miðá í Dölum, og vorum við 6 saman að veiða þar. Hollið okkar endaði með 10 laxa, þar af náði ég tveimur. Arnór og Eggert voru ekki alveg í stuði og enduðu fisklausir þennan túrinn.
Síðan viku seinna fórum við 4 saman í Hvannadalsá, og ég var nú með frekar meiri væntingar en venjulega, svona miðað við að það er komið fram á þennan tíma og fiskur ætti því að vera í einhverju magni. En ekki urðum við neitt voðalega mikið varir við fisk og náðum ekki nema 3 kvikindum, frekar slappt. Atli og Frikki þurftu að fá þann vafasama heiður að vera fisklausir þennan túrinn.
Þetta er semsagt búið og vonandi bara von um meiri veiði næsta sumar.
En þá víkjum við okkur austur á Seyðisfjörð.
Þangað skellti ég mér ásamt Fannari Hjálmars og Gísla Jóni á Landþing Sambands Ungra Sjálfsæðismanna, eða semsagt SUS.
Tókum flugið klukkan 10:30 á föstudagsmorgni og komnir austur um 11:30. Tókum okkur bílaleigubíl og skelltum okkur á rúntinn.
Þingið byrjaði ekki fyrr en klukkan 18:00 þannig að við höfðum fínan tíma í að leika okkur aðeins.
Við kíktum á: Reyðarfjörð, Eskifjörð, Fáskrúðsfjörð, Stöðvarfjörð og Breiðdalsvík. Nenntum ekki yfir á Neskaupstað. En eitt, ef einhver er að tala um að Snæfellsbær sé krummaskuð, þá endilega skellið ykkur á Breiðdalsvík!!! Þá fáiði að vita hvað felst í orðinu "krummaskuð"
Við rendum síðan af stað til Seyðisfjarðar upp úr kl 17:00.
Sko fólk er að hneykslast á því þegar verið er að grafa göng fyrir svona litla bæi úti á landi, en þið sem ekki hafið komið til Seyðisfjarðar ættuð að prófa. Aðkoman að bænum er bara hreinasta grín. Heiðin er ábyggilega svona 2 km fyrir ofan bæinn og svo er vegurinn bara lóðrétt niður á við með 90 gráðu beyjum langleiðina niður, þvílíkt og annað eins.
Þingið var sett á réttum tíma og síðan var farið í rútuferð í elstu virkjun landsins sem heitir fjarðaselsvirkjun og er hún frá 1913 eða 1908 man ekki alveg. Man að ljósaperan inni sem kallinn kveikti á fyrir okkur hún er frá 1908 og er sennilega elsta virka peran í heimi. Og ein vélin þarna inni er frá 1913 og malar eins og kettlingur enþá í dag. Talandi um að vélar dugi ekkert.
Á laugardeginum hófst svo málefnavinnan, ég skellti mér í auðlindanefndina og var hún frekar bara róleg, allir sammála og ekkert vesen, enda lukum við störfum mjög fljótlega. Fór síðan yfir í samgöngunefndina þar var öllu meira fjör, og ábyggilega 30 manns þar inni. Þetta kláraðist samt allt í góðu svoleiðis allavega.
Eftir hádegið hófst síðan umræðan um ályktaninar og kosning þeirra og breytingatillagna.
Svo um 19:00 leiitið var okkur boðið í kokteil í elstu vélsmiðju landsins í boði bæjarstjórnar Seyðisfjarðar, þar var fullt af gömlu dóti líka, virkilega gaman að sjá allt þetta gamla dót.
Kl 20:30 hófst síðan dinnerinn og dagskráin í Herðubreiðinni. Flottur matur og flottur salurinn. Eina sem skemmdi fyrir mér kveldið voru Garðbæingarnir, en þeir buðu upp á skemmtikraft, sem er kannski í lagi nema hvað að þetta var GEIR ÓLAFS!!! og ég er yfirlýstur Geir Ólafs hatari, ég bara hata manninn. Enda löbbuðum við út eftir fyrsta lagið.
Fórum uppá farfuglaheimili og drukkum til kl 01:00 og skelltum okkur þá á ballið með Todmobil sem bara stuð, og virkilega gott band á böllum. Hún Andrea Gylfa er bara flott á sviðinu takk fyrir.
Jæja við vorum nú ekki lengi að þetta kveldið enda þreyttir eftir daginn og kvöldið áður því við tókum kannski aðeins of mikið á því á föstudagskveldinu. Gísli entist reyndar nokkuð lengi á lau.
Sunnudagurinn var rólegur, kosinn nýr formaður og varaformaður og ný stjórn sus mynduð, já og FAnnar HJ komst inn í varastjórn eins og hann ætlaði sér, glæsilegt það.
En síðan var farið að týja sig af stað til Egilstaða rétt fyrir kl 17:00 ætluðum að slaka aðeins á og fá okkur að borð og svonna áður en við færum af stað. Áttum allir pantað flug að sjálfsögðu, komum allir með sömu vélinni en fórum allir burt með sitthvorri vél hihihi, það var bara ekkert laust á hvaða tíma sem er.
Nema hvað að eins og var í fréttunum aað þá var farið að snjóa víðsvegar um landið og Seyðisfjörður var þar engin undantekning og þurftum að fara upp á þvílíkan fjallveg á Toyotu corollu á sumardekkjum riiggghhhht.
Við komumst vel uppeftir en svo stóð allt fast og við komumst ekki lengra. Gísli var ekki alveg að treysta sér til að keyra meira og snúa við, þannig að ég tók við, enda er hann alinn upp í Reykjavík
hefðum örugglega komist ef ég hefði keyrt strax hehehe nei nei segi svona, hefðum sennilega aldrei komist. En á meðan við erum að svissa þá situr fannar inni í bíl og bíllinn byrjar að renna af stað og enginn við stýrið og það sást fallegur skelfingarsvipur á Fannari HJ þar sem hann ríghélt sér í. En hetjan ég að sjálfsögðu
muhahaha rétt náði að stökkva inn í bíl og stöðva förina, tók reyndar smá tíma þar sem hann rann bara á hálkunni og ekkert grip. Þannig að Fannar slapp við að fara veltandi inni í bíl aftur til Seyðisfjarðar. Okkur tókst svo að snúa við og komast til Seyðisfjarðar þar sem við tókum bara rútuna. Og allt gekk vel eftir það.
Eini bömmerinn í ferðinni að bakpokanum mínum með myndavélinni minni og Fannars var að öllum líkindum stolið, erum ekki alveg sáttir
bölvaðir kommúnistar hafa verið með í ferðinni.
En þetta var bara megastuð allt saman. Gaman að fara í innanlandsflug, hef ekki flogið innanlands síðan ég veit ekki hvenær, 1993 eða eikkað álíka. Gaman líka að fljúga yfir Reykjavík í myrkri, flott að sjá.
En þetta er svona það helsta. Svo var Fannar Hjálmars að reyna draga mig á kjördæmis þing 6 október á Blöndósi, ætla nú að bíða aðeins með að játa því, þessi flokkur fer að setja mann á hausinn með eintómum ferðalögum. En þetta er alltaf stuð.
Látum þetta duga í bili
kv Bjarti Sjálfstæðis veiðimaður...
Svaka tónleikar og síðan slappt djamm...
Svo lagaðist það en þá skellti maður sér suður á tónleika á laugardalsvellinum og söng sig hásan að sjálfsögðu með Bubba morthens
En já ég Einar og Fannar skelltum okkur á Laugardalsvöllinn á föstudagskvöldið, á þessa mögnuðu tónleika í boði KBbanka
Þar spiluðu bönd eins og SSsól, Todmobile nú og líka Bubbi. Svo voru þarna atriði eins og Nylon, luxor til að sýna okkur munin á gervi tónlistinni þeirra og alvöru tónlist eins og hjá SSsól t.d...
Tónleikarnir enduðu á stuðmönnum og ég skil ekki afhverju. Ef það er svartur blettur á þessum tónleikum þá var það frammistaða þeirra, þvílík heitasta hörmung. Ef þetta hefði ekki verið frítt, þá hefði ég heimtað endurgreitt bara fyrir þeirra frammistöðu.
Laugardagurinn var rólegur framan af. Ég og fanni rápuðum um verslunarmiðstöðvarnar að eyða peningum sem við eigum ekki til á milli þess skelltum við okkur í ljós til að þykjast vera flottir.
Fannar keypti sér t.d demants eyrnalokka fyrir kvöldið. Veit ekki afhverju.
Um leið og við vorum komnir niður í bæ þá hvarf hann og ég hef ekki séð hann síðann, það er kannski eitthvað sem hann er að fela í sambandi við þessa eyrnalokka en látum það liggja á milli hluta.
Laugardagkvöldið byrjaði heima hjá Fannari þar sem við djúsuðum það mikið að ég varð að teyma hann heim til stebba.
Heima hjá stebba voru: Stebbi, Ægir, Haffi , Einar og Alex. Komu síðan einhverjir nágrannar í heimsókn en þeir fóru fljótt aftur.
VIð fórum svo allir niður í bæ og inn á Celtic, eða ég, Stebbi og Alex. Einar og fannar hurfu og hafa ekki sést síðan. Stuð að djamma með svona mönnum.
En við 3 röltum síðan á Glaumbar og þaðan á Amsterdam. Þar hittum við fyrir Dóru, Jóhönnu, Rebekku, Erlu maríu já og Megas...
Buffið var að spila þarna og þetta var bara allt í lagi. Persónulega finnst mér samt alveg skelfliega leiðinlegt að djamma í rvk, það er kannski enþá smá þjóðhátíð í manni getur verið.
Ótrúlegt en satt, en á síðustu skemmtunum hef ég alveg látið símann vera, það er að segja ekki verið hringjandi og sendandi sms í allar áttir
Jæja nóg væl í bili.
P.s örfáar myndir frá tónleikunum á myndasíðunni
linkurinn http://bjarti.myphotoalbum.com/view_album.php?set_albumName=album19
tjá tjá
Kv
Bjarti
Já og annað p.s þið getið kommentað á myndirnar sem eru á myndasíðunni ef þið skylduð ekki vita það. Bara svona ef þið sjáið alveg þvílíkt flotta mynd, nú eða alveg forljóta
Og hér er eitt sem þið verðið að hlusta á, sérstaklega konur muhahaha
engin karlremba í gangi samt..http://dagskra.ruv.is/streaming/ras2/?file=4351913
Fyrsti laxinn í sumar og Besta helgi lífs míns liðin, Þjóðhátíð 2007 búin
Best að byrja bara strax á veiðiferðinni áður en ég kem að því besta. Við fórum ég,Atli, Nóri og Frikki í Hvanndalsá og lönduðum 6 fiskum. 4 löxum og tveimur bleikjum, allir fengu fisk þannig að enginn fór tómhentur heim.
Ég þurfti að hætta 3 tímum fyrr að hætta að veiða á fimmtudeginum svo ég næði nú Herjólfi kl 19:30 um kveldið.
Tók fáar myndir í þessari ferð og veit ekki hvort ég set þær inn, kannski seinna þá.
En já eins og fyrisögnin segir að þá er bestasta helgin í mínu lífi held ég bara liðin. En það var þjóðhátíðin 2007 sem fékk þann heiður að toppa allt sem hægt er að toppa.
Ekki veit ég hvað þið gerðuð en ef þið voruð ekki í eyjum þá held ég að þið hafið bara getið verið heima, einfalt mál.
Við vorum 6 allt í allt sem héngum sem mest saman: Ég, Gauji, Andrea, Fannar, Haukur og Einar.
Mér tókst að redda gistingu ekki nema nokkrum dögum fyrir þjóðhátíð. Vorum í kjallaraíbúð hjá hreint út sagt frábæru fólki sem djammaði með okkur alveg fram í rauðan dauðann. Ég og Dóri sem á húsið vorum t.d að skríða heim rúmlega 8 seinasta morguninn.
En það er svo mikið hægt að segja, og svo mikið sem ekki má segja
þau brilleruðu leyndarmálin í þessari ferð ![]()
" Leyndarmálin stór og smá,
gerðust nú á þjóðhátíð.
Ég því miður ekkert segja má,
heldur verð að geyma alla tíð."
Þetta var ævintýraferð sem ég og vinir mínir gleymum aldrei. Ekki veit ég hvort að Guð sé til, en ef svo er þá ætla ég að biðja þig kallinn minn að gera allt til þess að ég komist aftur á þjóðhátíð 2008 "please"
Og ég ítreka við ykkur sem ekki hafið farið!!! HVAÐ ERU ÞIÐ AÐ HUGSA??? drullist til að fara, hvort sem þið eruð gift með 23 börn eða eruð orðin 76 ára! hvað með það? lifið lífinu!!! eftir hverju eruð þið að bíða?
Þessi bloggsíða dugir ekki til að hafa allar sögurnar hérna. Þess í stað er ég búinn að setja inn myndir sem ég, já og reyndar Andrea Villimey líka tókum í Eyjum. Er líka búinn að setja inn nokkur video af okkur og fólki bara almennt.
Þegar þið horfið á þetta og heyrið rammfalskann mann öskrandi og að reyna syngja gjörsamlega raddlaus! þá er það ég
og er stoltur af.
Ég bara þakka fyrir mig þið sem voruð með mér, takk fyrir frábæra helgi. Og ég geymi leyndarmálin eins og þið ![]()
Mér er nú alveg sama hvort fólk kommentar eða ekki, en núna væri ég til í að fá nokkur. Annaðhvort frá vinum mínum sem voru með mér, en þó sérstaklega ykkur sem ekki voruð með, horfið á videoin og segið mér? hefðuð þið ekki verið til í að vera með okkur
haha enjoy
Hérna er linkurinn þannig þið þurfið ekki að leita af þessu
http://bjarti.myphotoalbum.com/view_album.php?set_albumName=album18
Skemmtið ykkur nú vel.
Kv Bjarti þjóðhátíðargestur
Jæja eitt blogg fyrir frí. . .
En núna fer í hönd vikuferðalag sem byrjar á þriðjudaginn þegar ég fer í laxveiðitúr númer 2 á þessu sumri. Og er ferðinni heitið í Hvannadalsá í Ísafjarðardjúpi.
Þetta er virkilega falleg á sem geymir pottþétt eitthvað af fiski, og jafnvel nokkrum stórum. Þeir taka sennilega ekki hjá mér en hvað með það :)
Við verðum að veiða þar fram á fimmt: Ég, Nóri, Atli og Frikki.
Svo verð ég að bruna strax úr veiðiferðinni, reyndar aðeins fyrr áður en veiðitíminn er búinn. Verð að vera snöggur því ég verð að vera kominn í bæinn á fimmtudeginum kl 17 því við förum svo með bsí væntanlega til þorlákshafnar og með Herjólfi á Þjóðhátíð í eyjum takk fyrir :D
Ekki laust við að það sé kominn smá spenningur í mann. Enda er bara ekkert sem jafnast á við þjóðhátíð. Það lítur út fyrir einhverja rigningu um versló sem betur fer, ég held að það sé ekkert varið í þjóðhátíð nema að það rigni, ekkert stuð í brekkunni öðruvísi.
Kem síðan heim aftur á þriðjudeginum efir versló. Uss uss usss. Þetta verður meira ruglið.
Jæja en ég kveð í bili með smá myndbandi fyrir ykkur sem eruð að fara á þjóðhátíð: þið getið bara hlakkað til við að horfa á þetta :D
Og þið hin sem eruð ekki að fara, þið getið bara öfundað okkur sem erum að fara. Þið reynið bara að skemmta ykkur heima, nú eða Akureyri eða úti í löndum eða hvert sem þið eruð að fara. Get bara lofað ykkur því að það toppar ekkert Þjóðhátíð. So sorry for u people :D who are not goin.
En annars eigiði fína versló og bara gangið hægt um gleðinnar dyr.
kv Bjarti
Well oh well
Það helsta merkilega sem ég hef frá að segja er t.d:
Fyrsti veiðitúrinn er búinn, þannig að nú eru bara þrír eftir. Þannig að það er mikið til að hlakka.
Við fórum í miðánna ég, Atli, Frikki, Garðar og Nóri nutt.
Fengum fínasta veður mikinn hita, en enga rigningu og engan lax í ánna. Náðum þó að kroppa upp 3 vænar bleikjur, sem er nú alveg ágætt. Enda var þessi túr meira svona upphitun fyrir hina túrana okkar sem verða allir á prime time og pottþétt lax gengin í árnar.
Ég tók nú ekki margar myndir en örfáar og er búinn að henda þeim inn á myndasíðuna undir veiðimyndir "miðá júlí 2007"
Nú ég kíkti út í gær á djammið, nema að nú var ég edrú og lét þar af leiðandi alla aðra um allt drama og vesen sem því fylgir. Ég var bara áhorfandi, og mikið ofboðslega var það fín tilfinning.
Það var reyndar ágætasta stemning á þessum svokallaðaðri fjölskylduhátíð Snæfellsbæjar, veit nú ekki alveg hvaðan þetta kemur en whatever bara.
Trítlaði með Völu, Matta, Andra og Gauja niður á Gilið.
Þar var slatti af fólki og flest allir fullir, eða bara allir nema ég. Hékk síðan mest megnið fyrit utan bara í blíðunni að drekka mitt kóka kóla
og spjallaði við fólkið.Tók nokkrar myndir en þær eru ekkert spes þannig að ég set þær ekkert inn. Eða ég sé til þegar ég nenni.
Búið að vera brakandi blíða í dag og ég sé eftir því að hafa ekki skellt mér að veiða eitthvert. En þegar mar vakir svona lengi að þá þarf maður að sofa líka eitthvað á móti. Þannig að ég vaknaði frekar seint í dag, enda fór ég ekki að sofa fyrr en klukkan 7 þótt að ég hafi verið edrú.
En ekki var það fleira í bili.
P.s Mitt fyrsta mótorhjól er komið heim. Og er ég búinn að taka rúnt, mikið ofboðslega er þetta gaman.
Það eru 3 myndir af því á myndasíðunni undir bílamyndir.
jæja þetta er nóg.
Hana nú. . .
úpss!!!
En þá er kannski kominn tími til að henda inn svona tveimur til þremur setningum.
Sko...
Sjómannadagurinn búinn, það var ágætis fjör á honum. Björgunarsveitin tók fyrstu skóflustungu að nýju húsi. Nýtt nafn var vígt ásamt nýju merki.
Nú svo var það sjómannaballið eins og venjulega, fór það svona að mestu leiti vel fram. Endaði í partý hjá Gauja en staulaðist nú samt nokkuð snemma heim, eða eitthvað um 5 leitið.
uuuu hvað meira... Já ég er búinn með mótorhjólaprófið :D nú stendur bara yfir leitin að rétta hjólinu ;)
Hmmm Sjálfstæðisflokkurinn sigraði kosningarnar.
Ég fór í bæinn á helginni, skellti mér í bíó. Eyddi aðeins of miklu í föt, kemur nú örsjaldan fyrir svoleiðis vitleysa hjá mér. Fór á djamm með Fannari, einari, Halldóru og vinkonum hennar.
Það endaði allt klukkan 7:30 um morgunin, var reyndar virkilega gott veður.
Fór á nýju pirates myndina sem er bara snjelld.
Brunaði síðan heim og hentist beint í útkall um 22:00 leitið og var búinn úr því klukkan 08:00 um morgunin, varð að sleppa vinnunni vegna þreytu, gat bara ekki meira.
Held að þetta helsta sé komið svona nokkurn veginn allavega.
En næst á dagskrá er: Partý hjá Dísu á helginni, Jónsmessa þar á eftir veit ekki hvað verður gert þá, og helgina þar á eftir fertugsafmæli hjá Davíð Óla, hann er loksins að verða stór strákur ;), nú svo styttist í fyrstu veiðiferðina af fjórum :D og svo eru 80% líkur á þjóðhátíð :D þannig að þetta lítur bara nokk vel út.
Hef svona eiginlega aðeins of mikið fyrir stafni þessa dagana, tímaleysi að fara með mann oft á tíðum. Ef einhver á extra tíma sem hann má missa, endilega hafið samband :D hann kemur að góðum notum.
Thjaa er þetta ekki nóg í bili? kem aftur eftir mánuð :p ef ég man ;)
Helll yeaaahhhh!!!
Laugardagurinn var virkilega virkilega rólegur. Endaði á því að vera sofnaður fyrir kl 23:00 takk fyrir, reyndu betur.
En þetta stafaði aðalega af þreytu og líka að þá sofnaði ég yfir mótorhjólabókinni sem ég átti að vera lesa, því ég var að fara í æfingapróf á sunnudeginum.
Nú það fór eins og það fór. Þegar maður kemur illa lesin þá bara ganga hlutirnir ekki upp.
Fékk þetta upp í 8 villur þar sem ég mátti fá tvær. Ég meina þetta hefði alveg getað verið verra. Skil ekkert í þessu að vera leggja svona mikla áherslu á þessi umferðamerki, það þekkir þetta ekki einn einasti maður nema rétt fyrir prófið og búið.
En ég með lífið í lúkunum og illa augað sem ökukennarinn gaf mér, fór heim og las og las í gærkveldi, ásamt því að taka 20 æfingapróf á netinu til kl 00:30 í gær. Fór síðan að sofa, því ég þurfti að vakna í vinnu kl 03:45, svaf reyndar lítið, vaknaði á klukkutíma fresti útaf stressi því ég var að fara í bóklega prófið í morgun.
En þetta reddaðist, þrátt fyrir allt stressið og þá staðreynd að ég er búinn með neglurnar, að ég náði prófinu.
Fékk aðeins eina villu í fyrri hluta og eina í seinni. Þannig að nú eru bara eftir ökutímarnir og verklega prófið og síðan getur maður þeyst eftir götunum á einhverju öðru en bíl.
En þetta er ekki það eina góða, jú því að MANCHESTER UNITED VARÐ Í GÆR ENSKUR DEILDARMEISTARI!!!!
BESTA LIÐ ENSKU DEILDARINNAR. "reyndar í öllum heiminum en það er önnur ella"
Það er þá komin ein dolla í hús og bara eftir að ná í eina í viðbót.
Svo loka góða fréttin er sú að Sjálfstæðisflokkurinn er að skora BIG TIME í könnunum. En þetta eru ekki úrslitin svo að betra að geyma öll fagnaðarlæti þangað til talið hefur verið úr kössunum.
Nú er seinasta vikan fyrir kosningar rétt nýhafin og það á pottþétt eftir að verða eitthvað þras fram að laugardag.
Var að koma heim af fundi með Geir Haarde og Einari Oddi. Snilldar menn þar á ferð alveg gjörsamlegir snilldar menn.
Spjallaði aðeins við Geir á kosningaskrifstofunni og ég get ekki sagt annað en það að ég bara vill ekki sjá neinn annan stjórna þessu landi, það er bara mín skoðun..
En ég er eitthvað í svo góðu skapi að ég nenni ekki að hanga hér að skrifa eitthvað lengur sem enginn nennir að lesa þannig að bara tjá tjá
